fimmtudagur, 13. febrúar 2014

Það er ótrúlegt hvað það brotnar mikið af glösum og diskum hérna hjá okkur og er það þá ekki endilega barnanna sök. Heimilisfaðirinn er einstaklega iðinn við að brjóta hluti á heimilinu, svo oft að nú er honum aldrei treyst fyrir einhverju sem ber tilfinningalegt gildi :) Það er náttúrulega alltaf frekar súrt þegar fallegir hlutir brotna, þess vegna kemur sér alltaf vel að fara ferð í IKEA og versla þar glös og diska til hversdagslegra nota. Þar sem það var farið að vanta aðeins í glasaskápinn fórum við eina ferð í búðina góðu og þar komu tvenn glös til greina.


Þessi eru í algjöru uppáhaldi en gallinn er að það er ekki hægt að stafla þeim saman. Þvi miður verða þau að bíða eftir stærra eldhúsi og því urðu önnur fyrir valinu.


Ekki drauma glösin en þau passa bæði vel í skápinn og í hendi.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli